$$.. og fræg setning sögð í ákveðinni þýskalandsferð sem ég því miður var ekki hluti af "Kaupa, kaupa, kaupa" kemur uppí hugann þegar ferðin er gerð upp. En get allavega sagt það að ég og spússa mín förum ekki í jólaköttinn í ár (ætli hann komist hvort eð er nokkuð til Tenerife?) Það var allavega mjög hagstætt að versla þarna úti og nóg af búðum til að skoða.
Fórum líka í GO-Kart og þrátt fyrir STÓRAR og miklar yfirlýsingar frá Kidda Björns þá stóð hann engan veginn undir þeim og gerði ekkert annað en að hægja á mér og Þorsteini en Hannes fékk bilaðann bíl (segir hann
) og skipti þetta hann því engu máli. En til að gera langa sögu stutta þá bombaði Túttinn á mig og ÉG var skammaður, en kom þó ekki að sök þar sem ég tók besta tímann og mesta hámarkshraða
.
Hér eru svo nokkrar myndir úr ferðinni, tók ekkert margar þannig ég set örugglega bara þessar inn.

Ívar, Túttinn og Hannes

Ég og Hannes í aftari röð, Tútti og Kiddi í fremri.

Ég farinn framúr Þorsteini

Verið að lesa MÉR stykkið eftir að Þorsteinn bombaði á mig!!

Svenni þessi var bara fyrir þig 

Fórum út að borða í neðanjarðarbyrgi

Meira af því.

Höber og frú!!

Sveinn "eldri" og ég

Hansína og Þorsteinn

Skafti og Kári að drepast ofan í glasið, sem var regluleg sjón þarna úti

Skafti og Krsitinn (shopping buddy
)

Guðrún sæta og Ég
Snorri "Lewis" Páll "Hamilton" Guðbjörnsson kveður